Á svipuðum tíma í fyrra skrifaði ég hér á þessa sömu síðu að ég teldi að árið 2008 yrði eitt af þeim árum sem myndi standa upp úr. Vissulega verður 2008 eitt af þessum árum sem við munum eftir alla tíð en þó einkum vegna kreppurnnar sem hefur tröllriðið öllu undanfarna mánuði. Hvað mig sjálfa varðar verður 2008 ekki eitt af þessum merkilegu árum sem standa upp úr í minningunni þó svo að margt hafi verið brallað.
Smá upprifjun á árinu:
Janúar: Fyrsta dag ársins kom í heiminn ný frænka og fékk hún nafnið Guðrún Anna síðar í þessum sama mánuði. Fleira gerðist líka í fjölskyldunni á nýársdag því Eva systir trúlofaðist honum Garðari sínum á nýársdagskvöld. Davíð bróðir keppti á sínu fyrsta körfuboltamóti strax fyrstu helgina í janúar og ég skellti mér á Bubbatónleika með Ásu og Emmu. 20.jan varð svo litli bróðir 8 ára og nokkrum dögum síðar fór ég í eitt stykki sjúkrapróf vegna desemberælunnar.
Febrúar: Mamma bauð mér óvænt til London um miðjan mánuðinn. Með einungis 3ja daga fyrirvara þá skellti pían sér í heimsókn til Evu og Garðars þar sem við skemmtum okkur saman heila helgi. Klárlega hápunktur mánaðarins !
Mars: Þessi mánuður einkenndist af LEN-skýrslugerð vísindateymisins EEG. Svo var víst líka árshátíð, páskafrí, prófaundirbúningur og eitthvað fleira að ske (rauðvínsklúbbur hjá mér ?)
Apríl: Hlutverki mínu sem formaður Tinktúru lauk þarna um mánaðarmótin, ég valdi mér lokaverkefni, lærði hrikalega mikið undir próf, varð sífellt spenntari fyrir útskriftarferðinni og stóð í töluverðu læknastússi sem endaði allt mjög farsællega.
Maí: PRÓF… do I need to say more ?? Jú og svo auðvitað mál málanna, útskriftarferðin svakalega !!! Fór til New York og Puerto Rico seinnipart maímánaðar og það var algjörlega tær snilld
Júní: Vaknaði fyrsta dag júnímánaðar í Puerto Rico og dreif mig svo beint í siglingu um Karabíska hafið, ekki slæm byrjun á mánuði það. Daginn eftir varð ég svo 26 ára gömul og var afmælisdeginum meðal annars eytt í nuddi einhvers staðar úti á rúmsjó. Um kvöldið var svo galadinner og partý á eftir
Þessir fyrstu dagar júnímánaðar liðu áfram eins og í draumi á Aruba, Curacao, St.Martin og St.Thomas. Þann 8.júní var þó komið að heimferð og þann 10.júní lenti ég loksins heilu og höldnu á klakanum eftir vægast sagt brösulega heimferð. Strax daginn eftir tók svo við vinna sem aðstoðarlyfjafræðingur hjá Lyfju. Þann 23.júní eignaðist Kristín frænka pínulitla stelpu en sú stutta var ekki nema 4 merkur. Litlan fékk síðar nafnið Auður og hefur braggast gríðarlega vel á árinu. Í lok júnímánaðar voru svo náttúrutónleikarnir í Laugardalnum þar sem Josh frá Taiwan var mættur til að horfa á uppáhaldssöngkonuna sína hana Björk, eftir tónleika var svo tryllt innflutningspartý hjá Söndru og Árna.
Júlí: Vinna vinna vinna og svo tvíbbaafmæli hjá Guðríði og Kristínu ásamt frábærri norðurferð með tæfunum mínum. Var líka töluvert lasin í þessum mánuði sem kom að einhverju leyti í veg fyrir djamm en hey, það er ágætt að vera bara edrú stundum.
Ágúst: Í þessu mánuði ætlaði ég til Rúmeníu á IPSF en þar sem að ég var eitthvað blönk og svona þá hætti ég við að fara með. Verslunarmannahelginni var eytt í faðmi fjölskyldunnar í Þorlákshöfn þar sem landsmót UMFÍ var haldið. Restin af mánuðinum fór í vinnu, geitungafár, pússl og fleira sniðugt eins og að bíða eftir að Ása vinkona kæmi kid nr.2 í heiminn
September: Síðasta haustönnin á námsferlinum hófst strax í byrjun mánaðarins, 3.sept kom svo í heiminn Eyþórs- og Ásuson sem síðar fékk nafnið Ari Ævar. Félagslífið blómstraði sem aldrei fyrr og ég splæsti í eins og tvær Londonferðir. Í lok mánaðar tilkynnti Eva systir síðan um væntanlegt brúðkaup á vormánuðum 2009 og má eiginlega segja að fjölskyldan hafi nánast tapað sér úr spenningi yfir þessum fréttum
Október: Mánuðurinn hófst með Londonferð kreppuhelgina miklu. Hef aldrei gert jafn lítið í London og aldrei eytt jafn fáum pundum, krónurnar sem ég eyddi voru hins vegar á svipuðu róli og venjulega. Að venju var það gríðarlega hressandi að skreppa aðeins út fyrir landsteinana þrátt fyrir að kreppan væri mætt á svæðið þegar ég kom til bara. Restin af mánuðinum fór í snargeðveika verkefnatörn í skólanum ásamt Airwaves tryllingi og einhverju smá tjútti.
Nóvember: Verkefnageðveikin hélt áfram en þrátt fyrir það náðist að koma rauðvínsklúbbi, Döggu/Ölmu afmæli, leikhúsferð og einhverju fleiru inn í planið. Í lok mánaðarins hófst svo hefðbundinn próflestur sem þó var óvenjulegur að því leiti að ég hafði ekki opnað bók alla önninna !
Desember: Að venju var fyrri partur desembermánaðar helgaður próflestri en törnin var þó óvenjustutt þar sem síðasta prófið var 11.des ! Inn í próflesturinn fléttaðist rauðvínsdrykkja og smákökubakstur með skemmtilegum hætti. Til að fagna próflokum þá fór bekkurinn á jólahlaðborð þann 12.des og svo í tryllt partý hjá Ölmu og Rúnari, snilldarkvöld með snilldarfólki. Restin af mánuðinum einkenndist af vinnu og hátíðarhöldum ásamt því sem að Eva systir og Garðar mættu á klakann með stórfregnir sem munu setja töluvert mark á komandi ár
Þá læt ég þessu lokið að sinni og óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs.
Nýjustu athugasemdir