The queen

Í dag var gerð tilraun tvö til þess að komast í leikfimi, ákvað að reyna við einn góðan mrl um kvöldmatarleytið. Þegar ákvörðunin hafði verið tekin tók ég uppá þeim ósóma að liggja í rúminu mest allan daginn svona til þess að safna kröftum fyrir tímann;) Þegar að líða tók á daginn rann upp fyrir mér að ég þyrfti nú kannski að moka bílinn minn úr skaflinum í innkeyrslunni. Það hafðist og ég brunaði af stað í Baðhúsið til móts við 90-60-90…….. Þegar í Baðhúsið var komið kom í ljós að skipt hafði verið um kennara og var því mrl drottningin sjálf mætt á pallinn í öllu sínu veldi. Ég verð bara að koma því á framfæri að þessi kona er snillingur, hún pínir mann endalaust og maður verður bara að gjöra svo vel og þrauka því að ef maður gefst upp þá tekur hún sér bara stöðu fyrir framan mann og pínir mann áfram. Þetta var æðislegur tími og ég ætla sko að mæta í gamlárssprengju hjá drottningunni á morgun í Sporthúsinu ásamt Guðrúnu Lind ! Verð líka að nefna ferðina heim úr Baðhúsinu, lenti nebblega fyrir aftan eina sem komst ekki af stað og hún bara reykspólaði og bjó til þetta fína svell. Jæja, mín fór út að ýta og á endanum komst gellan af stað og ég svona með þokkalega reykeitrun. Þegar ég síðan keyrði af stað þá lenti ég nottla beint á svellinu en þar sem ég er á Ka Mountain þá nottla reddaði mín sér bara sjálf, það þarf sko ekki að ýta KA eitt né neitt !!!

Respond to this post