Mér var tjáð það áðan að ég væri með frekar ljósa húð ! Ég hváði og bað viðkomandi um að endurtaka þessi stórmerku ummæli um húðina mína.
Get svo sem samþykkt að ég hef ekki beinlínis verið ljósabrún undanfarið en ég er sko ekki með ljósa húð. Ég hef aldrei brunnið fyrir utan tvö skipti þar sem ég notaði aðeins of mikið magn af sólarolíu og gleymdi mér í sólinni
Og ég þarf ekki nema örfáa daga í sól til að verða kolbikasvört.
Eitt sumarið þegar ég var lítil og kom í heimsókn til ömmu þá tók sú gamla sig til og skrúbbaði á mér hendurnar þar til að húðin var næstum farin af. Henni fannst ég svona skelfilega skítug á höndunum en staðreyndin var að þetta var bara pjúra brúnka
Þið getið kallað mig litla eða feita en ég er sko ekki með ljósa húð !!!
Posted by Lena Dögg on 25 júní 2006 at 1:21 am
hahaha.. alltaf verið svört um leið og smá sól nær að brjótast rétt í gegnum skýin ..og ég og maríanna alltaf eins og fugleklatter við hliðin á þér ..hehee en já þíð verðið að fara að kíkja á mig og molann minn
Posted by GS on 26 júní 2006 at 12:43 pm
Ótrúlega skrýtin ummæli, jafnvel á veturna þegar er engin sól ertu ekki með ljósa húð. Úff hvað myndi svona kona segja um mig! Húðin mín er svo ljós að æðarnar myndu sjást í gegn ef ég hefði einhverjar!